9. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 6. mars 2017 kl. 09:30


Mættir:

Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) formaður, kl. 09:30
Pawel Bartoszek (PawB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ari Trausti Guðmundsson (ATG), kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Einar Brynjólfsson (EB), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:30
Logi Einarsson (LE), kl. 09:30
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) fyrir Gunnar Braga Sveinsson (GBS), kl. 09:30

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerðir 6., 7. og 8. fundar voru samþykktar.

2) 128. mál - farþegaflutningar og farmflutningar Kl. 09:30
Nefndin hóf umfjöllun um málið og fékk á sinn fund Sigurberg Björnsson og Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur frá innanríkisráðuneyti, sem kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Reglugerð nr. 1257/2013 (EB) um endurvinnslu skipa Kl. 10:15
Dagskrárlið frestað.

4) Fráveitumál við Mývatn. Kl. 10:15
Nefndin fékk á sinn fund Þorstein Gunnarsson frá Skútustaðahrepp, sem fjallaði um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1032 sem ákvarðar niðurstöður sem gilda fyrir bestu aðgengilegu tækni (BAT) samkvæmt tilskipun nr. 2010/75/EU, fyrir járnlausan málmiðnað. Kl. 11:00
Dagskrárlið frestað.

6) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/403 frá 18. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1071/2009 að því er varðar flokkun alvarlegra brota flutningsaðila (umferðaröryggi, flutningaöryggi) Kl. 11:00
Dagskrárlið frestað.

7) Önnur mál Kl. 11:05
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 11:05